23.1.2009 | 23:12
Hörður segir það sem margir hugsa
Hörður segir það sem margir hugsa. Takk fyrir það Hörður, þú ert hetja.
Baráttukveðjur til Geirs, vonum að hann fái skjótan bata.
|
Hænuskref í rétta átt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Tilfinningaklám
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 877
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Hvað er hann að draga veikindi......................
Ykkur er ekki sjálfrátt - þvílík viðbjóðviðbrögð
og þið eigið skv. nöfnunum að vera kvenkyns.
Þið eruð öllu heiðarlegu og hugsandi kvenfólki til skammar -
Ólafur I Hrólfsson
Ólafur Ingi Hrólfsson, 23.1.2009 kl. 23:25
Ólafur: Og samkvæmt nafninu þínu átt þú að vera karlkyns. Þú ert öllum heiðarlegum og hugsandi karlmönnum til skammar.
Færðu rök fyrir máli þínu áður en þú fordæmir. Hvers vegna, þó við séum kvenkyns, álítur þú að við tölum fyrir alla kvenkyns einstaklinga í þessu landi. Erum við kyninu til skammar? Erum við ekki bara fólk? Þú ert þá öllum körlum til skammar, af því að þú hefur aðrar skoðanir en við? Hörður karlmönnum og hommum til skammar, o.s.frv?
Okkur þætti fróðlegt að vita hvað það er sem vekur viðbjóð þinn.
Bergljót Hjartardóttir og Lovísa Hilmarsdóttir, 23.1.2009 kl. 23:38
Þið eruð svo sannarlega ekki kvenþjóðinni til skammar, þvert á móti er gott að hafa konur sem þora að segja sína skoðun þó svo að hún sé ekki skoðun fjöldans.
Ég er ekki að segja að ég sé sammála ykkur en en tek svo sannarlega ofan fyrir ykkur að þora að segja þetta í bloggheimum. Flott hjá ykkur.
Ólafur hvers vegna eru þetta viðbjóðaviðbrögð þó þeim finnist Hörður vera hetja? Hörður gerði athugasemd við að Geir hafi tilkynnt þetta á sama degi og hann boðaði til kosninga og hvað með það? Hættið þessu offorsi gagnvart fólki sem er ekki sammála ykkur. Það var ekkert í viðtali Harðar sem bendir til þess að hann sé viðbjóður og alls ekkert í færslu þessara kvenna sem vekur viðbjóð. Það er mín skoðun og Ólafur ég ætlast til þess að þú virðir það og svarir málefnalega. Annars ert þú sá sem þarft að skammast sín.
Erla (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 23:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.